Í körfunni eru 0 hlutir, samtals 0 kr.


 Úrval fyrir vatnaveiði

Verð: 4.560 kr.

Silungaúrval - Tilboð í maí

Hér eru alls 24 púpur sem ganga mjög vel í öll vötn á landinu og sérstaklega góðar fyrir bleikju og urriða í vötnum.
Þetta úrval er gott fyrir byrjendur og svo má bæta inn í það síðar. Úrvalið er á 4560 kr og er hver fluga á 190 kr/stk og svo fylgir fluguboxið frítt með.


 Úrval Dr Jónasar

Verð: 7.900 kr.

Tilboð fyrir laxveiði

Í þessu boxi er allt sem þarf til að hefja laxveiðar hvar sem er á landinu. Í fluguboxinu eru Míkróflugurnar Collie dog og svört frances, þríkrækjurnar Hairy Mary og Green but, gárutúpurnar Sunray Shadow og Teal and Black. Síðan eru Frances flugur og longtail flugurnar Dimma, Snælda, Black and Blue og Cascade.

Í túpuboxinu eru Frances keilur, collie dog míkrókeila, snældu og frances túpur og Cascade og Sunray keilur.

Boxin fylgja frítt með. Boxin eru hugsuð sem gjafir fyrir veiðimenn og svo eru einnig ef þú ert að byrja laxveiði þartu ekkert nemaþessi box í veiðiferðina.

Frances rauð tungsten keilan er á efa veiðnasta laxaflugan á Íslandi í dag. Tungsten keilan er mun þyngri en koparkeilan og nota ég hana mikið í vor og haustveiði þegar ég þarf að koma flugunni hratt niður. Oft hefur mér gefist vel þegar ég sé lax við stein að kasta þannig að flugan berst að honum á sama dýpi og laxinn er. Þannig rýkur hann beint á fluguna hugsanlega vegna þess að hún ógnar honum. Tungsten örkeilan er mun minni og hentar vel allt sumarið. Hún er gjarnan veidd með flotlínu miðsumars og fram á haust með ótrúlegum árangri. Oft hefur hún gefið okkur marga laxa á efri svæðum Norðurár miðsumars. Tvímælalaust túpa sem ég tek með mér í alla veiðitúra.

Dentist er ein skæðasta alhliða laxfiskafluga sem til er á Íslandi. Keilurnar eru mikið notaðar í sjóbirting og lax, straumflugan í sjóbirting, urriða og sjóbleikju. Dentist tungsten keilan þykir ómissandi í Skjálfandafljóti fyrir norðan. Smelltu orðinu Dentist í leitarhaminn hér að ofan til að fá allar gerðir fram.

Heimsfrumsýning Keilu-búkar

Í tilefni að því að frances.is er 10 ára um þessar mundir kynnum við í fyrsta sinn nýjung í fluguhönnun á laxaflugum, keilutúpa með skiptanlegum búk. Hugmyndin var að hnýta úr öllum okkar vinsælustu laxaflugum Íslands í eina flugu. Síðan er hægt að skipta út búkum að vild. Þetta eru Frances, Black Sheep, Green butt, Collie dog og Black and Blue. Þessa keilutúpu hannaði ég haustið 2006 í tilefni af því og veiðivinkona okkar Margrét Hafdís Hauksdóttir var fimmtug í einni veiðiferð okkar í Selá. Margrét eða Maddí er kona Friðriks Þ. Stefánssonar fyrrverandi SVFR formanns. Er skemmst frá því að segja að flugan sló strax í gegn og Maddí veiðir varla á aðra flugur og veiðir oftast okkur hina í kaf. Eftir þennan veiðitúr var flugan skýrð Maddí design.

Smelltu hér til að kaupa

Greinasafn

Frískari frances.is vefur

Ágæti fluguveiðimaður. Nú hefur frances.is enn gert breytingar af vefverslun sinni . Helstu breytingar eru auðveldara aðgengi að pöntunarsíðum og einnig hefur verið aukið enn meira öryggi í kortaviðskiptum. Síðan er nú tengd www.DalPay.com sem er öruggur vefmiðill fyrir vefviðskipti með kreditkortum. Smelltum hér til að kynna þér DalPay.

Endilega vafraðu um netverslunina og skoðaðu nýjungar. Sérstaklega eru áhugaverðar Topp 20 laxa og silungaflugur. Hægt er að skoða lýsingar á flugunni á með því að smella á hverja mynd.

Fara á fréttir og veiðisögur

  © www.frances.is, Dr. Jónas Jónasson, frances@frances.is
Buy from DalPay Retail | Internet Merchant Accounts | www.dalpay.com